Ævintýrið heldur áfram.
Undanfarin ár höfum við fylgst andaktug með ævintýrum Skotta, Huppu og Freyju í hinum æsispennandi Freyjuheimi, undarlegum hliðarheimi þar sem sælgætið á upptök sín og talandi dýr vaða uppi. Hver man t.d. ekki eftir þessari hérna:
Og nú er nýtt páskaævintýri frá Freyju að fara af stað af fullum krafti. Páskarnir eru jú að nálgast óðfluga.
Skotta, Huppu og Freyju er hins vegar að berast liðsauki úr óvæntri átt þessa páskana: Ný persóna er að líta dagsins ljós.
Við erum að tala um dularfulla og heillandi refastelpu sem á eftir að hafa gríðarleg áhrif á framgang ævintýrisns þetta árið. Við getum hins vegar, að svo stöddu, ekki uppljóstrað neinu meira um hlutverk hennar eða framvindu sögunnar.
Það sem við getum sagt ykkur er að refastelpunni vantar nafn. Og nú er að fara af stað nafnasamkeppni um hvað téð refastelpa á að heita. Það eruð þið, kæru áhorfendur og áheyrendur sem að hafið valdið.

Þannig að fólk almennt ætti að taka þátt í skemmtilegum leik, skella sér inn á freyjuheimur.is, hlusta á hjartað sitt, og gefa refastelpunni dularfullu nafn.
Fyrir utan að taka taka þátt í ævintýrinu eigið þið nefnilega líka möguleika á að vinna glæsilega og gómsæta páskaeggja veislu frá Freyju fyrir alla fjölskylduna.