Epísk umfjöllun um (óopinberan) Íslandsmeistaratitil Kapital í Foosball.

Sjáið til: Allt síðan í fyrndinni, þegar Kapital leit fyrst dagsins ljós, hefur ákveðin listgrein spilað stóra rullu í lífi Kapital. Hér er að sjálfsögðu átt við fyrirbærið sem breytir lífum og gerir drengi að mönnum: Foosball. 

Ef að Foosball hefur ekki nú þegar komið inn i líf þitt, lesandi góður, bendum vér þér á að smella á tengilnn hér fyrir ofan. Ekkert mun verða samt aftur.

Það varð það allavega ekki í herbúðum Kapital. Allt frá því að karlmannlegir hrammar starfmanna Kapital gripu i fyrsta sinn um grjótharðar og rennilegar stálstangir varð ekki aftur snúið.

Eins og gjarnan  er raunin með hluti sem breyta lífum vatt Foosball-iðkun Kaptalmanna hressilega upp á sig, og ýmsar miskunnarlausar hefðir og  reglur dúkkuðu upp, sérsniðnar til að fullnægja gríðarlegu keppnisskapi Kapitalmanna, óseðjandi þörf þeirra eftir spennu, óviðráðanlegri fíkn þeirra í hættu. Þessar reglur miða jafnframt ekki síst að því að niðurlægja andstæðinginn og neyða hann til að framkvæma skammarlegar athafnir með skottið á milli lappanna.

Í stuttu máli snúast reglurnar meðal annars um að ef lið nær ekki ákveðnum fjölda stiga þurfa liðsmenn að skríða undir Fossballborðið að leik loknum.

Ekki láta kalt brosið blekkja ykkur. Það er ekki gaman að skríða undir borð.

Myndskreytt lýsing á orðinu "skömm."

Skríddu fyrir mig.

En Kapital lætur ekki staðar numið þarna: Kapital fer ávallt lengra, er sífellt á hreyfingu, er stöðugt að þróast. Þannig hefur einnig verið innleidd sú regla að ef lið nær engum (0) stigum þurfa liðsmenn að dveljast í tvær (2) heilar mínútur undir Foosballborðinu sem brást þeim svona herfilega. Þessir tvær (2) mínútur eiga það til að virðast vera mun, mun lengri tími, og oftar en ekki upplifa menn langt og sársaukafullt uppgjör við sjálfa sig á meðan þeir sitja þarna, eins og dæmdir hinum hinsta dómi, og hugsa sinn gang.

Einnig nefnt Hreinsunareldurinn.

Þessi hrokafulli hundur var með stórkarlalegar yfirlýsingar um ágæti sitt i Foosball. Kapitalstarfsmenn lækkuðu í honum rostann.

Þessar hörðu refsingar, þessi gríðarlega pressa sem Kapitalstarfsmenn lifa við á hverjum degi, hefur hert menn, hefur framkallað sigg á sálum og lófum. Enda kom það á daginn þegar Já  hélt stórglæsilegt og allt að því ekki óopinbert Íslandsmeistaramót fyrirtækja í Foosball að rétt ens og stál temprast og herðist í eldi höfðu áráttukenndar og ómanneskjulegar þjálfunarbúðir Kapital skilað töluverðum árangri. Og eftir taplausa framgöngu stóð Kapitalvélin uppi sem öruggur sigurvegari.

Menn fylgdust andaktugir með.

Kapitalvélin í fullum gangi.

Þjálfunin búinn að skila sér. No sacrifice, no victory.

Kapital er stolt af þessu.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.