Bragðkönnun sem bragð er af.
Í tilefni af nýútkomnu Rex súkkulaðikexinu frá Freyju ákvað Kapital, sem að vanda er með puttann á púlsinum, að ráðast í afar umfangsmikla og fagmannlega bragðkönnun á súkkulaðikexum. Möguleikar hins almenna neytanda til að gæða sér á súkkulaðikexi eru nefnilega töluvert margir, sjáið til, og á tímum sem þessum er jafnvel enn mikilvægara en áður að vera með einfaldan en góðan smekk og versla aðeins það besta.
Eftirfarandi er því skilmerkilegur myndaþáttur sem útlistar ítarlega hvernig téð bragðkönnun fór fram, enda mikilvægt að sýna beinharðar og óyggjandi sannanir fyrir því að allt hafi farið rétt fram og öllum reglum hafi verið fylgt af áráttukenndri nákvæmni.
Vinsamlegast athugið að nöfn hinna súkkulaðikexanna í könnuninni verða ekki birt: Þetta er gert til að vernda hina saklausu.

Bragðkönnunin var a sjálfsögðu framkvæmd blindandi: Fagmannleg vinnubrögð voru höfð í fyrirrúmi.

Alþjóðlegum reglum um framkvæmd vandaðra bragðkannana var fylgt í hvívetna. Eftirlitsnefnd alþjóðlega bragðkannanasambandsins (ABKS) hafði ekkert út á framkvæmdina að setja og gekk jafnvel svo langt að hrósa könnuninni sem þeirri best skipulögðu sem hún (eftirlitssofnunin) hefur orðið vitni að.

Dómnefndin var skipuð einvalaliði sérmenntaðra sérfræðinga. Hróður dómnefndarinnar jókst svo jafnvel enn frekar þegar Þorvaldur Davíð Kristjánsson, efnilegasti leikari landsins, ljáði verkefninu krafta sína.

Einkunnaspjöld dómnefndar voru sérpöntuð frá Frakklandi, og jafnframt fagmannleg.

Mikilvægt er að skola munninn reglulega þegar maður er staddur í hringiðu bragðkönnunar. Þetta er gert til að hreinsa munnholið og gera það enn móttækilegra fyrir mismunandi blæbrigðum.

Krýndur sigurvegari.
Þegar allt kom til alls, eftir margra klukkutíma rannsóknir, eftir blóð svita og tár, eftir að menn höfðu belgt sig út af súkkulaðikexi, er einkennilega viðeigandi að Rex þýði “Konungur” á latínu: Því hann bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína í þessari geysilega vönduðu bragðkönnun, og var krýndur efsta sætinu, kórónunni.
Við óskum Rex, og Freyju, innilega til hamingju með árangurinn.