iPhone festival Kapital.
Muniði þegar farsímar voru jafn stórir og andlit á hesti? Sú er ekki lengur raunin. Farsímar hafa, líkt og hlutir gera almennt, breyst og þróast, orðið eitthvað annað og meira. Og fyrst við erum á annað borð farin að ræða þróun farsíma, og vegna þess að fyrirsögnin gefur það sterklega í skyn, skulum við ræða aðeins um iPhone.
Ef einhver er að velta því fyrir sér meikar fullkomið sens að Kapital bloggi um iPhone. Ástæðurnar eru eftirfarandi, listaðar og númeraðar í engri sérstakri röð:
1. Þar sem jafnvel enn meira en helmingur starfsmanna Kapital (70%) á, hefur aðgang að eða getur nálgast iPhone síma var tekin tiltölulega meðvituð ákvörðun um að fjalla stuttlega um þessi forláta símtæki, þessi smekklegu, smekklegu tól.
2. Allt sem hefur að gera með tækni, framfarir og smekklegheit er Kapital viðkomandi, enda allt fyrirbæri sem Kapital er viðloðandi.
3. Flickr síðan okkar inniheldur myndir einungis teknar með iPhone, og jafnframt myndir einungis hlaðið inn með iFlickr forritinu, sem við niðurhöluðum af internetinu og settum inn í iPhone símana okkar..
4. Það er hægt að installa Nintendo gervihermi til að spila alla gömlu góðu Nintendo leikina…í iPhoneninum þínum!!!
Fjórði (4) og síðasti liðurinn hér að framan hefur strangt til tekið ekkert að gera með upptalninguna sem hann er partur af, en það breytir því ekki að hann er frábær, og hérna er listi yfir fleiri frábær forrit sem er hægt að niðurhala af internetinu og setja inn í handheldan og glansandi iPhone símann þinn.
Annars er ekki hægt að vera með umfjöllun um iPhone, sama hversu sundurlaus hún er, án þess að koma inn á að nú er fáanlegur (í heiminum, ekki á Íslandi, við búum á eyju gott fólk) splunknýr iPhone 3G, sem getur aðeins flokkast sem næsta kynslóð téðra síma. iPhone 3G er glansandi og handheldur sími sem getur meðal annars nýst sem GPS tæki. Þú getur þannig látið símann segja þér hvort þú sért á Hverfisgötu í Reykjavík eða Hafnarfirði, samt ekki því Google kortið virkar ekki á Íslandi nema í gervihnattamyndagæðum (sbr. að við erum eyja sem er algerlega aðskilin frá meginlandinu og mannúðlegri menningu).
En í staðinn fyrir að lesa okkur gaspra spígsporandi og óreiðukennt um hvað iPhone sé ofboðslega flottur á því, mælum við með eftirfarandi listum, í engri sérstakri röð:
1. Fimm (5) ástæður fyrir því að kaupa sér Apple iPhone 3G síma.
2. Sjö (7) leiðir til að nota iPhone símtæki til að heilla kvenmenn, einstaklinga af fríðara og fínlegra kyninu.
Góðar stundir.