Mennt er máttur – Kapital gerir kynningarefni fyrir Verzló og HA

Eða eins og maðurinn sagði: “Knowledge is power.” Kapital er afskaplega umhugað um velferð samfélagsins, og þar er góð menntun mjög ofarlega á blaði. Eðli málsins samkvæmt er Kapital áfjáð í að koma góðri menntun á framfæri svo að sem flestir megi njóta hennar.

 

Kapital vonar með öðrum orðum að sem allra flestir verði farsælir menntamenn og -konur. Það er ekki síst þess vegna sem að Kapital tók nýverið að sér að koma menntun, umgjörð og félagslífi Verzlunarskóla Íslands (oft nefndur Versló þegar fólk bregður fyrir sig slangri) á framfæri. Þetta getið þið svo skoðað á slóðinni www.finnduverzlinginn.is.

 

Kapital lét sér svo ekki nægja að koma menntun á menntaskólastigi á framfæri, heldur vatt sér ennfremur í að koma hinni stórborg Íslands – Akureyri – og háskólanum þar á framfæri.

 

Hvern langar ekki að búa og/eða stunda nám á Akureyri? Í það minnsta mun fleirum eftir að Kapital sérsmíðaði og sérhannaði hressandi kynningarefni fyrir Háskólann á Akureyri. Starfsemi Kapital er þar af leiðandi orðin á landsvísu, sem flestir ættu að geta verið sammála um að er mjög eðlileg þróun. Ef þú, kæri ferðalangur, vilt upplifa landsbyggðina og/eða eða smekklegt handbragð hvetur Kapital þig til að athuga www.haskolanam.is.

 

Þetta var lærdómsrík reynsla.

Skildu eftir svar