Það er farið að…hausta.

Posted in Uncategorized on miðvikudagur | 16. september 2009 by kapitalpunkturis

Kæru samstarfsaðilar, vinir, velunnarar, vandamenn og fólk sem slysaðist inn á þessa síðu: Það er farið að hausta.

 Náttúran er með plan, sjáið til, árstíðirnar láta keflið ganga og við færumst fram á við. Loftið verður jafnvel enn tærara. Laufblöð fara hamförum og skipta litum, eins og trén séu nemendur í förðunarskóla eða ákaflega áhugasöm um líkamsmálningu.

Líkamsmálning er spennandi listform. Hér sjáum við innblásturs-gefandi dæmi um hana upp á sitt besta.

Líkamsmálning er spennandi listform. Hér sjáum við innblásturs-gefandi dæmi um hana upp á sitt besta.

 Og mannfólkið líður rólega úr láréttri stöðu í lóðrétta. Það er kominn tími til að hætta að flatmaga í sólbaði. Það er kominn tími til að taka til hendinni.

 Kapital er ákaflega meðvitað um allt þeta. Þessu til staðfestingar bendum við ykkar á eftirfarandi fregnir, stórtíðindi, skýr skilaboð um að hlutirnir blómstra líka  á haustin:

1.

Í fyrsta lagi, þetta: Kapitalstarfsmenn eru ógnarhressir, og hafa undanfarið, sem fyrr, unnið baki brotnu við að koma spennandi markaðslausnum úr hugmyndaskýjum og hugsunarblöðrum inn í raunveruleikann. Það hefur gengið alveg hreint prýðilega.

Aldrei gefast upp. Allt er mögulegt.

Aldrei gefast upp. Allt er mögulegt.

2.

Athugið, vinsamlegast athugið: Kapital leitar eftir fjársterkum aðilum í sambandi við byltingarkennda og framsækna viðskiptahugmynd.

Hver kannast ekki við að vera geðveikt bissí og vera að tala í símann þegar skyndilega kemur upp sterk þörf og löngun til að nota báðar hendurnar í mikilvægt verkefni? Hefðbundnir símar krefjast þess að annarri hendinni sé undantekningarlaust fórnað í að halda á þeim. Hefðbundinn handfrjáls búnaður krefst þess að þú lítir út eins og kjáni talandi út í loftið, auk þess sem að snúran flækist nær undantekningarlaust í fötum, hurðahúnum, og/eða öðru fólki.

Kapital hefur lausnina! HandKappinn (skráð vörumerki) er byltingarkenndur búnaður sem frelsar alla útlimi á meðan talað er í símann, auk þess sem hann gerir notandann fáránlega töff. Eftirfarandi mynd mun útskýra nákvæmlega hvað um ræðir og eyða öllum efasemdum:

HandKappinn í action.

HandKappinn í action.

Áhugasamir hafi sambandi í síma 414-3600, eða með tölvupósti  á netfangið kapital@kapital.is

3.

Kapital skellti sér á ákaflega athyglisverða ráðstefnu á dögunum, nánar tiltekið 09.09.09, þar sem internetið og feiknarlegir möguleikar þess í markaðsstarfi voru ræddir til hlítar, frá ýmsum hliðum. Forvígismaður þessa merka fyrirbæris bloggar hér, og eru áhugasamir, sem og óáhugasamir, hvattir til að kynna sér málið betur. 

Það er allt að gerast.

Haust, komdu fagnandi.

SumarKapital.

Posted in Uncategorized on föstudagur | 10. júlí 2009 by kapitalpunkturis

Ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum er komið Sumar, þó það sé reyndar erfitt að átta sig á hvernig árstíðarstatusinn gæti hafa farið framhjá nokkrum manni.

Móðir Náttúra er að minnsta kosti svo sannarlega með “Rjúkandi Sumar!!! Vúúú!!!” á statusnum á fésbókinni sinni.

Það er á svona stundum sem að konsefftin “Vetur” og “Myrkur” missa alla merkingu í höfðinu á Íslendingum, ákveðið æði rennur á landsmenn (til að orða það smekklega), og Ísland gengur í gegnum tryllingsleg hamskipti.

Að streitast á móti er fásinna.

Fásinna.

Fásinna.

Sá sem þetta bloggar er því að hugsa um að hætta að mæna löngunaraugum út um gluggann, standa rólega upp, taka fingurna af lyklaborðinu og f

Bragðkönnun sem bragð er af.

Posted in Uncategorized on fimmtudagur | 11. júní 2009 by kapitalpunkturis

Í tilefni af nýútkomnu Rex súkkulaðikexinu frá Freyju ákvað Kapital, sem að vanda er með puttann á púlsinum, að ráðast í afar umfangsmikla og fagmannlega bragðkönnun á súkkulaðikexum. Möguleikar hins almenna neytanda til að gæða sér á súkkulaðikexi eru nefnilega töluvert margir, sjáið til, og á tímum sem þessum er jafnvel enn mikilvægara en áður að vera með einfaldan en góðan smekk og versla aðeins það besta.

Eftirfarandi er því skilmerkilegur myndaþáttur sem útlistar ítarlega hvernig téð bragðkönnun fór fram, enda mikilvægt að sýna beinharðar og óyggjandi sannanir fyrir því að allt hafi farið rétt fram og öllum reglum hafi verið fylgt af áráttukenndri nákvæmni.

Vinsamlegast athugið að nöfn hinna súkkulaðikexanna í könnuninni verða ekki birt: Þetta er gert til að vernda hina saklausu.

Bragðkönnunin var a sjálfsögðu framkvæmd blinandi: Fagmannleg vinnubrögð voru höfð í fyrirrúmi.

Bragðkönnunin var a sjálfsögðu framkvæmd blindandi: Fagmannleg vinnubrögð voru höfð í fyrirrúmi.

 

Alþjóðlegum reglum um framkvæmd vandaðra bragðkannana var fylgt í hvívetna. Eftirlitsnefnd alþjóðlega bragðkannanasambandsins (ABKS) hafði ekkert út á framkvæmdina að setja og gekk jafnvel svo langt að hrósa könnuninni sem þeirri best skipulögðu sem hún (eftirlitssofnuin hefur orðið vitni að.

Alþjóðlegum reglum um framkvæmd vandaðra bragðkannana var fylgt í hvívetna. Eftirlitsnefnd alþjóðlega bragðkannanasambandsins (ABKS) hafði ekkert út á framkvæmdina að setja og gekk jafnvel svo langt að hrósa könnuninni sem þeirri best skipulögðu sem hún (eftirlitssofnunin) hefur orðið vitni að.

Dómnefndin var skipuð einvalaliði sérmenntaðra sérfræðinga. Hróður dómnenfndarinnar jókst svo jafnvel enn frekar þegar Þorvaldur Davíð Kristjánsson, efnilegasti leikari landsins, ljáði verkefninu krafta sína.

Dómnefndin var skipuð einvalaliði sérmenntaðra sérfræðinga. Hróður dómnefndarinnar jókst svo jafnvel enn frekar þegar Þorvaldur Davíð Kristjánsson, efnilegasti leikari landsins, ljáði verkefninu krafta sína.

Einkunnaspjöld dómnenfndar voru sérpöntuð frá Frakklandi, og jafnframt fagmannleg.

Einkunnaspjöld dómnefndar voru sérpöntuð frá Frakklandi, og jafnframt fagmannleg.

Mikilvægt er að skola munninn reglulega þegar maður r í hringiðu bragðkönnunar. Þetta er gert til að hreinsa munnholið og gera það enn móttækilegra fyrir mismunandi blæbrigðum.

Mikilvægt er að skola munninn reglulega þegar maður er staddur í hringiðu bragðkönnunar. Þetta er gert til að hreinsa munnholið og gera það enn móttækilegra fyrir mismunandi blæbrigðum.

Krýndur sigurvegari.

Krýndur sigurvegari.

Þegar allt kom til alls, eftir margra klukkutíma rannsóknir, eftir blóð svita og tár, eftir að menn höfðu belgt sig út af súkkulaðikexi, er einkennilega viðeigandi að Rex þýði “Konungur” á latínu: Því hann bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína í þessari geysilega vönduðu bragðkönnun, og var krýndur efsta sætinu, kórónunni.

Við óskum Rex, og Freyju, innilega til hamingju með árangurinn.

Bloggeimreiðin Kapital.

Posted in Uncategorized on miðvikudagur | 13. maí 2009 by kapitalpunkturis

Kapital vill hefja þessa færslu á afsökunarbeiðni: Kapital vill biðjast afsökunar á framferði sínu. Þá erum við að sjálfsögðu að tala um ákveðinn samdrátt í bloggfærslum á þessari ágætu síðu, sem að hefur verið allt að því óumflýjanleg afleiðing gríðarlegra anna innan herbúða þessarar annars dagfarsprúðu auglýsingastofu.

Stundum tekur maður bara of stórt upp í sig.

Stundum tekur maður bara of stórt upp í sig.

Það var aldrei ætlun okkar að særa ykkur þessu holundarsári, ágætu og fjölmörgu reglulegu lesendur þessarar síðu. Og þó að einhver, eða jafnvel margir, myndu segja að bloggþurrkurinn undanfarið hefði verið mjög eðlilegt og náttúrulegt viðbragð við áðurnefndum (og í eðli sínu mjög athyglisverðum) önnum viljum við fullvissa aðdáendur okkar um að þetta kemur ekki fyrir aftur: Við höfum lært okkar lexíu. Við þurfum að sameina viðskipti (sbr. annir) og ánægju (sbr. að blogga fyrir ykkur, sem er frábært).

Hin endanlega sameining viðskipta og ánægju.

Hin endanlega sameining viðskipta og ánægju.

Bloggmaskínan Kapital er semsagt hérmeð komin á gríðarlegt fart, og er mikilla tíðinda að frétta héðan á allra næstu dögum.  Fartið er raunar svo mikið, þeysingin slík, að réttast væri að líkja þessu við eimreið. Reykspúandi eimreið sem brunar svoleiðis eftir teinunum að enginn vafi er á að ekkert grín er hér á ferð.

Dularfullir vinir Kapital.

Posted in Uncategorized with tags , , , , on þriðjudagur | 31. mars 2009 by kapitalpunkturis

Til að byrja með: Kapital er að sjálfsögðu ákaflega meðvitað um hinar fjöldamörgu leiðir sem hið magnþrungna internet býður upp á til að hafa samskipti við fólk, til að miðla upplýsingum, til að sýna sig og sjá aðra.

Örfá skýr dæmi um það að Kapital sé ekki bara með meðvitund heldur beinlínis glaðvakandi þegar kemur að þessum efnum (eins og svo mörgum öðrum) er til að mynda þetta blogg sem þú kæri lesandi hefur fyrir augunum núna og lest væntanlega reglulega af áfergju, stórskemmtileg Flickr síða Kapital, auk þess sem Kapital er að sjálfsögðu áráttukenndur notandi á Facebook.

Internetið vill vera vinur þinn.

Internetið vill vera vinur þinn.

Kapital er semsagt, með öðrum orðum ansi sjóað þegar kemur að ólgusjó veraldarvefjarins. Við erum eldri en tvævetur (2) í að feta beinu brautina í rangölum tvöfalltvafftvöfalltvafftvöfalltvaff.

Veraldarvefurinn býður ekki bara uppá vini, heldur líka góð kaup.

Veraldarvefurinn býður ekki bara uppá vini, heldur líka góð kaup.

Hins vegar brá Kapital eilítið í brún þegar við fengum tvær (2) undarlegar og beinlínis dularfullar vinabeiðnir á Facebook með stuttu millibili.

Sú fyrsta var frá þessum gaur:

skotti

Hann kallar sig víst Skotta.

Og sú seinni frá þessari…dömu…hér:

huppa

Hún kynnir sig sem Huppu.

Það er auðvitað fjarri Kapital að vera með fordóma af nokkru tagi, hvað þá gagnvart teiknimyndapersónum, þannig að við samþykktum bón þeirra beggja um vinskap.

Þetta samþykki okkar gerði hins vegar ekkert til að róa forvitni gagnvart þessum karakterum, ekkert til að slökkva fróðleiksþorsta okkar. Hver eru Skotti og Huppa? Hvaðan koma þau? Hvert eru þau að fara? Hverjir eru draumar þeirra og þrár?

Eftir ítarlega rannsóknarvinnu, eftir að hafa blaðað í gegnum þykka skjalabunka og blásið ryki af gömlum bókum, en samt aðallega bara töluverðri Gúgglun, fundum við athyglisverða vísbendingu:

Plottið þykknar.

Plottið þykknar.

Hvað erum við að tala um? Hvað þýðir þetta?

Kapital er hvergi nærri búið að gefast upp. Svo mikið er víst. Meira um þessa dularfullu vini síðar. En þangað til getið þið kíkt á þetta. Og líka þennan.

Kapital og kjörið próf: Prófkjör.

Posted in Uncategorized on miðvikudagur | 11. mars 2009 by kapitalpunkturis

Það er runninn upp þessi undarlegi tími árs, kæru landsmenn, þar sem alvarlega þenkjandi fólk otar sínum tota villt og galið, básúnar byltingarkenndum skoðunum sínum á öllum torgum og út um allar trissur, og stígur trylltan dans sem senn nær epískum hæðum.

Allt til að betrumbæta samfélag okkar og Ísland eins og það leggur sig svo um munar.

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

Í mjög heiðarlegri tilraun til að stuðla að þessari framrás ljáði Kaptial Sjálfstæðisflokknum krafta sína, og smíðaði, framleiddi, og setti saman vef sem (eðli málsins samkvæmt) nýtir slagkraft hins alræmda og umtalaða internets til að kynna Prófkjör Sjálfstæðismanna  á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Útópísk sýn.

Útópísk sýn.

Í ljósi þess pólitíska stormviðris sem þessi uppljóstrun, þessar upplýsingar koma til með að valda, fannst okkur rétt að birta hér beint fyrir neðan opið bréf til íslensku þjóðarinnar, yfirlýsingu sem kemur til með að taka af öll tvímæli:

“Kæra þjóð: 

  • Þeir sem standa að Kapital  munu ekki taka pólítíska afstöðu á stafrænum síðum þessa vefrits. Þeir sem standa að Kapital spanna að öðru leyti alla liti í hinu pólítíska litrófi.
  • Þeir sem standa að Kapital eru metnaðarfullt fólk sem hefur gæði og skemmtilegheit að leiðarljósi.
  • Þeir sem standa að Kapital eru samasafn af gömlum sálum sem búa í ungu fólki sem er ungt í anda.
  • Kapital elskar Ísland.

-Takk fyrir.”

Og hananú. Þetta ætti að beina umræðunni í réttan farveg.

Víti til varnaðar.

Víti til varnaðar.

Talandi um farveg, þá ætlar Kapital ekki að sitja með hendur í skauti á þessum umbrotasömu umbótatímum, heldur opinbera hér, svipta hulunni af sínu eigin framboði: Framboði sem mun, með umboði þjóðarinnar allrar, snúa við þeirri öfugsnúnu þróun sem hefur verið að eiga sér stað á Íslandi og í heiminum öllum.

Við höfum svörin.

Hvaða svör eru það, spyrjið þið?

Sjá: Frambjóðendur okkar, og stefnumál, slagorð þeirra.

Sævar

xsaevar

"Traust, sem þú getur treyst."

Pierre

"You want croissant? I will give you."

"You want croissant? I will give you."

Haukur
xhau

"Umbun. Fyrir umbætur."

Baldur

xbalkri

"Leyfðu þér smá lýðræði."

Hjörtur

xhjo

"Breyting sem þú getur trúað á."

Kapital innleiðir jafnframt byltingarkennt og nýstárlegt kosningakerfi fyrir frambjóðendur sína: Kosningin fer fram á kommentakerfi (e. comment) þessarar ágætu síðu.

Megi besti maðurinn sigra.

Pulsupartí nr. 2 (The Secret Ingredient)

Posted in Uncategorized on mánudagur | 2. mars 2009 by kapitalpunkturis

Þessi pistill er bundinn öðrum pistli órjúfanlegum tryggðar- og trúnaðarböndum: Nánar tiltekið pistlinum Pulsupartí (nr. 1) sem að þið, lesendur góðir, ættuð að kynna ykkur til hlítar áður en lengra er haldið. Öðruvísi munuð þið ekki njóta þessa pistils til fullnustu, munið ekki getað uppplifað hárfín blæbigði fyrirbærisins, gyðjunnar sem við tilbiðjum, tölum um hér: Pulsunnar.

Pulsan er máttug.

Pulsan er máttug.

En eins og allir sannir unnendur Pulsunnar vita er pulsa ekki það sama og Pulsa. Ónei. Eins og greint var frá í síðasta Pulsupistli (sjá, sjá núna, alls ekki síðar, hér) leggur Kapital gríðarlegan metnað í Pulsun sína, svo mikla raunar, að við höfum sérlegan Pulsumeistara á okkar snærum.

Kristinn Svan.

Pulsumeistarinn vill vera vinur þinn.

Pulsumeistarinn vill vera vinur þinn.

 Staða Pulsumeistarans er (eðli málsins samkvæmt) ákaflega virðingar- og eftirsóknarverð, og þess vegna þarf það svosem ekki að koma neinum neitt sérstaklega á óvart að hatrömm barátta, nánar tiltekið valdabarátta, um titilinn skeki nú höfuðstöðvar Kapital: Að menn oti sínum tota villt og galið, það er að segja að flóknar Pulsueldunaraðferðir og exótísk álegg séu predikuð eins og enginn sé morgundagurinn.

Það er einmitt þess vegna sem að við getum kynnt ykkur, Pulsuáhugamenn góðir, byltingarkennda viðbót í Pulsueldunarvopnabúrið.

Við kynnum með stolti: Salatpulsa.

Ekki einu sinni reyna að segja að þið viljið ekki fá þetta upp í ykkur.

Ekki einu sinni reyna að segja að þið viljið ekki fá þetta upp í ykkur.

Gunnar Steinn Úlfarsson, einnig nefndur G-Rock, einhverntímann vísað til hans sem Gunshow, núna einungis kallaður Healthshow, hefur opinberað “The Secret Ingredient” (sjá hér að ofan), og gerði um leið harða atlögu að (hingað til) óskoruðu meistaravaldi Svansins með þessari óvenjulegu og ótrúlegu samsetningu (prófið hana!)

Og það merkilega  er að þetta er svona skrambi gott.

Ekki einu sinni reyna að segja að þið mynduð ekki vilja láta þennan mann setja Pulsuna sína upp í ykkur.

Ekki einu sinni reyna að segja að þið mynduð ekki vilja láta þennan mann setja Pulsuna sína upp í ykkur.

Já.

Posted in Uncategorized on þriðjudagur | 24. febrúar 2009 by kapitalpunkturis

Já, það var þarna um daginn sem að Já (sbr. símaskráin, hundraðogátján (118), já.is)) og Kapital leiddu saman hesta sína og riðu síðan af stað. Áfangastaðurinn, fyrir utan sólarlagið að sjálfsögðu, var kynningarmyndbönd fyrir nýjan og betri já.is: Myndbönd sem myndu á skýran og skilmerkilegan hátt útskýra hinar byltingarkenndu nýjungar sem vefurinn býður notendum sínum uppá.

Er það? Já.

Er það? Já.

Þessi tilkomumiklu (sjá hér að ofan) kynningarmyndbönd þurfti svo að ramma inn og vekja athygli á, þannig að Kapital smíðaði jafnframt gagnvirkt viðmót sem bauð gesti velkomna og leiddi þá í sannleikann um téðan spánýjan já.is. Kapital tók ennfremur þá skynsamlegu ákvörðun að láta Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur vera “frontmann” viðmótsins.

Myndir þú ekki vilja smella á þessa konu?

Myndir þú ekki vilja smella á þessa konu?

Kapital framleiddi semsagt fjögur (4) myndbönd fyrir Já, eitt fyrir hverja af kjarnaleitum já.is. Myndböndunum var ætlað að útskýra hlutina á mannamáli, sýna og segja fólki á einfaldan hátt nákvæmlega hvernig hlutirnir virkuðu á nýjum já.is

Já, það held ég nú.

Já, það held ég nú.

Oseisei, já. Ef ykkur finnst þetta soldið spennó (ég veit þið viljið það) mætti benda á möguleikann á að smella hér og upplifa hlutina augliti til auglitis í allt að því gagnvirkri dýrð.

Pulsupartí.

Posted in Uncategorized on mánudagur | 16. febrúar 2009 by kapitalpunkturis

Til að byrja með: Pulsa, í merkingunni kjötgöndull í þar til gerðu brauði, verður stafsett, skrifað “Pulsa” í þessari færslu, ekki, aldrei, “pylsa.” Höfum þetta á hreinu. Höfum jafnframt á hreinu að þegar nokkrir fílefldir karlmenn koma saman daglega, vinna, hlæja og svitna saman, er pulsupartí óumflýjanlegt.

Það er að segja: Mánudagar er Pulsupartídagar.

Starfsmenn Kapital settu X upphæð í púkk, og með þeirri upphæð hefur sérlegur Pulsumeistari Kapital umsjón. Pulsumeistarinn notar þessa upphæð svo til að kaupa (eðli málsins samkvæmt) Pulsur, pulsubrauð, remúlaði, hráan lauk, og  allan þann umfangsmikla aukabúnað sem fylgir almennilegri Pulsun, og almennilegu Pulsupartíi.

Pulsumeistarinn, án efa með eina tvær i maganum þegar myndin er tekin.

Pulsumeistarinn, án efa með eina tvær í maganum þegar myndin er tekin.

Svanur er einstaklega vel til þess fallinn að gegna embætti Pulsumeistara með prýði og gera okkur öll stolt, enda enginn nýgræðingur þegar kemur að því að renna gildri Pulsu inn í ylvolgt pulsubrauð.

Maður fær bara vatn i munninn.

Maður fær bara vatn í munninn.

 Svanur er ennfremur ekki einungis hokinn af reynslu í Pulsumálum, hann er líka ákaflega metnaðarfullur Pulsari. Þannig leitast hann við í hverri viku að slípa háþróaðar Pulsueldunaraðferðir sínar enn frekar til. Við getum ekki ljóstrað upp háleynilegri leyniuupskrift Svans á þessum vettvangi, en það sem við getum gert, til að gefa ykkur, lesendur góðir, hugmynd um vinnuna og metnaðinn sem Svanur leggur og setur í hverja einustu Pulsu sem hann handleikur,  er opinbera að Svanur leggur að staðaldri allan mánudagsmorguninn undir eldamennskuna.

Sem þýðir rúmlega þriggja (3) tíma undirbúningsvinnu áður en menn geta stungið ljúffengum Pulsum upp í sig. En Guð minn góður hvað það er þess virði: Orðin “Þetta er besta Pulsa sem ég hef sett upp í mig,” fljúga hægri vinstri í hádeginu á mánudögum. Og það frá mönnum sem taka Pulsurnar sínar mjög alvarlega.

Pulsur eru ekkert grin vinur minn.

Pulsur eru ekkert grín vinur minn.

Gunnar Steinn, stundum kallaður Got Tickets to the Gunshow, oft nefndur G-Rock, lýsti því svo yfir nýlega að hann myndi innan skamms útvíkka Pulsusýn starfsmanna Kapital allsvakalega með því sem hann vísar einungis til sem “The Secret Ingredient.”  

Við munum að sjálfsögðu smeygja þeim glóðvolgu tíðindum hingað inn um leið og þau berast.

Byltingin.

Posted in Uncategorized on miðvikudagur | 4. febrúar 2009 by kapitalpunkturis

 Byltingin étur ekki alltaf börnin sín. Stundum tekur hún þau blíðlega í faðm sér, umlykur þau sterkum og tattúveruðum örmum sínum, og setur þau blíðlega niður á nýjan og spennandi stað þar sem þau geta hreiðrað um sig og blómstrað. 

Það er að segja: Aðalstræti 8, fyrrverandi íverustað Kapital, og raunar öllu Gamla Morgunblaðshúsinu, verður bráðlega breytt í risastórt, tilkomumikið og veglegt hótel.

Tölvugerð mynd af hótelinu eins og það kemur til með að lita út.

Tölvugerð mynd af hótelinu eins og það kemur hugsanlega til með að líta út.

Það er að sjálfsögðu fjarri Kapital að standa í vegi fyrir framförum, þannig að við höfum söðlað um, fært okkur um set, hreiðrað um okkur, stofnað nýtt heimili í flæðandi og opnu rými í Lágmúla níu (9), sbr. “Nova húsið”, á fjórðu (4) hæð.

Þetta nýja opna og flæðandi rými hentar Kapital betur á allan hátt, og munu margvísleg umsvif fyrirtækisins án efa njóta sín jafnvel enn betur með breyttum staðháttum, betur hannaðari vettvangi, sem fellur eins og flís að rassi að þörfum téðrar auglýsingastofu: Eins og dúnmjúk plusssessa að fagursköpuðum afturenda.

Maður fær bara vatn i munninn.

Maður fær bara vatn í munninn.

Til að draga þetta saman: Við erum flutt. Við fluttum.

En þar með er ekki öll sagan sögð, lesendur góðir. Fyrirtæki eins og Kapital fylgir nefnilega feiknarlegt, eiginlega ótrúlegt magn af hafurtaski, og máttu starfsmenn Kapital gjöra svo vel að sleppa höndum af músum, brynna þeim, og bretta síðan rækilega uppá ermar til að flytja úr stað téð svínslegt magn af dóti.

Flutningar eru ekkert grin vinur minn.

Flutningar eru ekkert grín vinur minn.

Jafn ofurmannleg og epísk átök fela óumflýjanlega í sér karlmannlegt hnjask, hækkaðan líkamshita og tilfinningalegt uppnám: Töluvert af blóði, svita og tárum. Þetta er óumdeilt. Hins vegar þarfnast seremónía, athöfn á þessum skala jafnframt píslarvotts, lambs sem leiða þarf  til slátrunar ef vel á að fara og tryggja á góðan anda í nýja húsnæðinu. Gunnar Steinn, einnig nefndur G-Rock, stundum kallaður Got Tickets to the Gunshow, tók þetta á sig.

Fórnarlambið.

Byltingin heimtar blóð: Fórnarlambið.

Samstarfsfélagar G-mannsins, eins og hann er eiginlega aldrei kallaður, sýndu snör viðbrögð eftir að blóðinu hafði verið úthellt og guðirnir friðaðir. Pierre dró fram nál og tvinna, Gunni fékk koníaksglas til að súpa á, og síðan var hafist handa við að tjasla honum saman.

Tjöslunin.

Byltingin friðuð: Tjöslunin.

Þetta dramatíska atvik markaði nýtt upphaf, dauða hins gamla og upprisu hins nýja: Enda gekk allt eins og í sögu, eðlilega, eftir þessi metafýsísku tímabilaskipti: Rétt eins og landflekar sem renna mjúklega ofan á hlýrri jarðskorpunni en rekast svo saman með hastarlegum afleiðingum eru þessi umskipti ekki alltaf auðveld eða þægileg. En þau (þ.e. umskiptin) eru aðeins hluti af stærri heild, römmuð inn af óumflýjanlegri framrás, byltingu.

Óumflýjanleg byltingin át ekki foosballborðið.

Gott foosballborð getur líka auðveldað flest umskipti.